Hversu mikla reynslu þarf ég af gervigreind?
Það er kostur að hafa prófað að spjalla við gervigreind, en þú þarft ekki tæknilega sérþekkingu. Á Námskeiði 1 lærirðu að gefa skýrar leiðbeiningar, veita samhengi og þróa niðurstöður með samtali. Algjör byrjandi getur fylgt kennslunni, en námskeiðið nýtist líka þeim sem hafa prófað gervigreind og vilja vinna markvissar með hana.
Get ég tekið námskeiðin hvort í sínu lagi?
Já. Námskeið 1 stendur sjálfstætt og hægt er að taka Námskeið 2 sérstaklega ef þú hefur sambærilegan grunn. Með heildarnámsleiðinni byggirðu áfram á færninni úr Námskeiði 1 í næstu tveimur vinnulotum og færð jafnframt afslátt af samanlögðu verði námskeiðanna.
Hvað er AI-agent?
AI-agent er gervigreindaraðstoðarmaður sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum og nýtt skrár eða verkfæri sem þú veitir honum aðgang að. Þú gefur honum markmið, samhengi og leiðbeiningar, yfirferð niðurstöður og stýrir framhaldinu. Á Námskeiði 2 æfirðu einnig að láta agenta með ólík hlutverk vinna saman. Agentar geta gert mistök, svo yfirferð og eigin dómgreind eru mikilvægur hluti af vinnulaginu.
Hvaða verkfæri eru notuð í Námskeiði 2?
Í Námskeiði 2 notarðu annaðhvort Codex frá OpenAI, fyrirtækinu á bak við ChatGPT, eða Claude Cowork frá Anthropic. Þú velur annað verkfærið og þarft ekki að hafa aðgang að báðum. Þessi verkfæri gera þér kleift að vinna með AI-agentum, skrár og tengd verkfæri undir þinni leiðsögn. Viðmót og einstök skref geta verið ólík, en áherslan er á vinnubrögðin sem þú lærir.
Hvað þarf ég að undirbúa fyrir Námskeið 2?
Fyrir verklega þátttöku þarftu fartölvu með Codex eða Claude Cowork og virkan aðgang að verkfærinu sem þú velur. Fyrir námskeiðið færðu uppsetningarleiðbeiningar og upplýsingar um undirbúning. Prófaðu aðganginn fyrir tímann. Ef þú notar vinnutölvu skaltu einnig kanna hvort vinnustaðurinn heimili verkfærið og vinnu með viðeigandi skrár og tengingar.
Ég er þegar með ChatGPT-áskrift. Þarf ég aðra áskrift?
Ekki ef núverandi aðgangur þinn veitir þér aðgang að Codex. Þú þarft ekki að vera með bæði Codex og Claude Cowork til að taka þátt í Námskeiði 2. Aðgangur að eiginleikum og notkunarmörk fara eftir áskriftinni þinni. Fyrir námskeiðið færðu leiðbeiningar til að kanna og prófa aðganginn.
Get ég notað vinnutölvu?
Já, ef reglur og aðgangsstýringar vinnustaðarins leyfa verkfærin sem þú ætlar að nota. Fyrir Námskeið 2 þarf tölvan að geta keyrt Codex eða Claude Cowork og leyft vinnu með viðeigandi skrár og möppur. Tenging við vinnupóst eða önnur vinnukerfi þarf einnig að vera heimil. Kannaðu þetta fyrirfram hjá vinnustaðnum; eigin fartölva getur verið einfaldari kostur ef vinnutölvan er læst.
Get ég nýtt það sem ég læri með öðrum gervigreindarverkfærum?
Já. Aðferðirnar við að útskýra verkefni, gefa samhengi, móta leiðbeiningar og yfirfara niðurstöður nýtast víða. Möguleikar á að vinna með skrár, tengjast forritum og samræma vinnu agenta eru þó mismunandi eftir verkfærum og aðgangi. Þú gætir því þurft að laga einstök skref að verkfærum vinnustaðarins. Fyrir verklegar æfingar í Námskeiði 2 notarðu Codex eða Claude Cowork.
Þarf ég að kunna að forrita?
Nei. Þú stýrir vinnunni með samtali og leiðbeiningum á venjulegu máli. Áherslan er á að útskýra hvað þú vilt fá fram, gefa viðeigandi samhengi og meta niðurstöðurnar. Þú færð leiðsögn við uppsetningu og verklegar æfingar.
Eru heimaverkefni í Námskeiði 2?
Já. Eftir hvora vinnulotu færðu heimaverkefni til að æfa það sem þú hefur lært. Milli tímanna prófarðu vinnubrögðin og tekur eftir því hvað gengur vel, hvar þú festist og hvaða spurningar vakna. Að loknum seinni tímanum færðu einnig hefti með hugmyndum að næstu skrefum svo þú getir haldið áfram á eigin spýtur.
Fæ ég kennslugögn og skírteini?
Já. Þú færð kennslugögn og skírteini eftir hvort námskeið sem þú lýkur. Í Námskeiði 2 færðu einnig grunnuppsetningu fyrir eigin aðstoðarmenn, heimaverkefni eftir hvora vinnulotu og hefti með hugmyndum að næstu skrefum.
Er hægt að taka námskeiðin í fjarnámi?
Námskeiðin fara fram á staðnum nema annað sé sérstaklega tekið fram. Ef þú ert hluti af hópi sem hefur áhuga á fjarnámskeiði, til dæmis frá vinnustað eða félagi, hafðu endilega samband. Við getum skoðað að setja upp sérstakt fjarnámskeið fyrir hópinn. Hafa samband
Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?
Reglur og fjárhæðir eru mismunandi eftir menntasjóðum stéttarfélaga. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns. Hafa samband
Hver er afslátturinn af heildarnámsleiðinni?
Heildarnámsleiðin kostar 84.900 kr. Samanlagt verð Námskeiðs 1 og Námskeiðs 2 er 94.800 kr., þannig að þú sparar 9.900 kr. eða rúmlega 10%.