UM BRAINBOX

Framtíðin er bjartari en þú heldur

Við trúum því að framtíðin eigi að vekja meiri von en ótta og að fá vandamál séu svo stór að við getum ekki leyst þau með skýrum tilgangi, sterkum vilja, jákvæðni og réttum verkfærum.

SÝN BRAINBOX

Bjartsýn og hagnýt nálgun

Við erum á umbreytingartíma þar sem gervigreind er þegar farin að breyta því hvernig við vinnum, lærum og tökum ákvarðanir. Tæknin skapar mikil tækifæri en til að nýta þau vel þurfum við að læra, endurhugsa vinnubrögð okkar og byggja upp nýja hæfni.

Ísland er lítið og sveigjanlegt samfélag og hefur því raunverulegt tækifæri til að vera í fremstu röð. Markmið BrainBox er að hjálpa einstaklingum og vinnustöðum að taka þátt í þessari þróun með sjálfstrausti, hagnýtri kennslu og verkefnum sem tengjast daglegu starfi.

Skoða námskeið