Námskeið 2
Lærðu að fela AI-agentum verkefni og stýra vinnu þeirra
AI-agentar eru gervigreindaraðstoðarmenn sem geta unnið verkefni í mörgum skrefum undir þinni leiðsögn.
Þú lærir að gefa agentum samhengi um vinnuna þína, skilgreina hlutverk þeirra og fela þeim skýr verkefni. Þú æfir að yfirfara niðurstöður, gefa endurgjöf og samræma vinnu fleiri en eins agents. Þú ert við stjórnvölinn og tekur ákvarðanirnar.
Námskeiðið skiptist í tvær 3,5 klukkustunda vinnulotur. Þú færð grunnuppsetningu fyrir eigin aðstoðarmenn og leiðsögn við að laga hana að þínum verkefnum. Í Námskeiði 2 notarðu annaðhvort Codex frá OpenAI, fyrirtækinu á bak við ChatGPT, eða Claude Cowork. Þú getur tekið þátt með hvoru verkfærinu sem er. Engin forritunarkunnátta er nauðsynleg.
Eftir hvora vinnulotu færðu heimaverkefni til að æfa áfram. Að námskeiði loknu færðu einnig kennslugögn, hefti með hugmyndum að næstu skrefum og námskeiðsskírteini.
VINNULOTURNAR
Frá fyrstu uppsetningu að samstarfi við AI-agenta
Í fyrri vinnulotunni seturðu upp grunn fyrir eigin gervigreindaraðstoðarmenn. Þú æfir að gefa þeim samhengi, móta vinnureglur og láta þá vinna með verkefni og skrár undir þinni leiðsögn. Heimaverkefnið hjálpar þér að prófa vinnulagið á eigin forsendum.
Í seinni vinnulotunni byggirðu á þeirri reynslu og æfir að láta fleiri en einn agent vinna saman að verkefni. Þú skilgreinir hlutverk, fylgist með framvindunni og yfirferð niðurstöður. Áherslan er á að skilja hvernig þú skiptir verkum og stýrir samstarfinu.
AFRAKSTUR NÁMSKEIÐSINS
Þetta lærirðu að gera
- Búa til eigin AI-agenta með skýr hlutverk, markmið og vinnureglur.
- Veita viðeigandi samhengi og varðveita það sem þarf til að halda vinnunni áfram.
- Láta agenta vinna með skrár og nýta verkfæri sem þú veitir þeim aðgang að.
- Skipta verkefnum milli agenta með ólík hlutverk og samræma vinnu þeirra.
- Yfirfara niðurstöður, kanna heimildir og leiðrétta stefnuna þegar þarf.
- Laga aðstoðarmennina og vinnulagið að eigin verkefnum.
- Þú
- Setur markmið og tekur ákvarðanir
- AI-agentarnir
- Vinna verkefnin eftir þínum leiðbeiningum
- Yfirferðin
- Hjálpar þér að meta og bæta niðurstöðurnar
FYRIR HVERJA
Fyrir fólk sem vill gera gervigreind að öflugum samstarfsmanni
Námskeiðið hentar þér ef þú hefur prófað gervigreind og vilt læra að fela henni stærri verkefni, gefa henni skýrari ábyrgð og stýra vinnunni frá upphafi til niðurstöðu.
Námskeiðið hentar þeim sem:
- Hafa lokið Námskeiði 1 hjá BrainBox eða öðlast sambærilega reynslu.
- Vilja læra að vinna með AI-agentum sem nýta samhengi, skrár og verkfæri til að leysa verkefni.
- Eru tilbúnir að prófa vinnubrögðin í verklegum æfingum og vinna heimaverkefni eftir hvora vinnulotu.
LEIÐBEINANDI
Stefán Gunnarsson
Tölvunarfræðingur og stofnandi BrainBox
Stefán Gunnarsson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum. Hann hefur víðtæka reynslu af því að nýta og innleiða gervigreind markvisst í vinnuumhverfi og kennir út frá raunverulegum verkefnum og eigin reynslu.
SPURT OG SVARAÐ
Algengar spurningar
Þarf ég að hafa lokið Námskeiði 1?
Ekki endilega. Við mælum með Námskeiði 1 eða sambærilegri reynslu. Gott er að kunna að útskýra verkefni fyrir gervigreind, gefa henni samhengi og bæta niðurstöður með samtali og endurgjöf. Námskeið 2 byggir á þeirri færni og færir þig áfram í að fela AI-agentum verkefni og stýra vinnu þeirra.
Hvað er AI-agent?
AI-agent er gervigreindaraðstoðarmaður sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum og nýtt skrár eða verkfæri sem þú veitir honum aðgang að. Þú gefur honum markmið, samhengi og leiðbeiningar, yfirferð niðurstöður og stýrir framhaldinu. Á Námskeiði 2 æfirðu einnig að láta agenta með ólík hlutverk vinna saman. Agentar geta gert mistök, svo yfirferð og eigin dómgreind eru mikilvægur hluti af vinnulaginu.
Hvaða verkfæri eru notuð í Námskeiði 2?
Í Námskeiði 2 notarðu annaðhvort Codex frá OpenAI, fyrirtækinu á bak við ChatGPT, eða Claude Cowork frá Anthropic. Þú velur annað verkfærið og þarft ekki að hafa aðgang að báðum. Þessi verkfæri gera þér kleift að vinna með AI-agentum, skrár og tengd verkfæri undir þinni leiðsögn. Viðmót og einstök skref geta verið ólík, en áherslan er á vinnubrögðin sem þú lærir.
Hvað þarf ég að undirbúa fyrir Námskeið 2?
Fyrir verklega þátttöku þarftu fartölvu með Codex eða Claude Cowork og virkan aðgang að verkfærinu sem þú velur. Fyrir námskeiðið færðu uppsetningarleiðbeiningar og upplýsingar um undirbúning. Prófaðu aðganginn fyrir tímann. Ef þú notar vinnutölvu skaltu einnig kanna hvort vinnustaðurinn heimili verkfærið og vinnu með viðeigandi skrár og tengingar.
Ég er þegar með ChatGPT-áskrift. Þarf ég aðra áskrift?
Ekki ef núverandi aðgangur þinn veitir þér aðgang að Codex. Þú þarft ekki að vera með bæði Codex og Claude Cowork til að taka þátt í Námskeiði 2. Aðgangur að eiginleikum og notkunarmörk fara eftir áskriftinni þinni. Fyrir námskeiðið færðu leiðbeiningar til að kanna og prófa aðganginn.
Get ég notað vinnutölvu?
Já, ef reglur og aðgangsstýringar vinnustaðarins leyfa verkfærin sem þú ætlar að nota. Fyrir Námskeið 2 þarf tölvan að geta keyrt Codex eða Claude Cowork og leyft vinnu með viðeigandi skrár og möppur. Tenging við vinnupóst eða önnur vinnukerfi þarf einnig að vera heimil. Kannaðu þetta fyrirfram hjá vinnustaðnum; eigin fartölva getur verið einfaldari kostur ef vinnutölvan er læst.
Get ég nýtt það sem ég læri með öðrum gervigreindarverkfærum?
Já. Aðferðirnar við að útskýra verkefni, gefa samhengi, móta leiðbeiningar og yfirfara niðurstöður nýtast víða. Möguleikar á að vinna með skrár, tengjast forritum og samræma vinnu agenta eru þó mismunandi eftir verkfærum og aðgangi. Þú gætir því þurft að laga einstök skref að verkfærum vinnustaðarins. Fyrir verklegar æfingar í Námskeiði 2 notarðu Codex eða Claude Cowork.
Þarf ég að kunna að forrita?
Nei. Þú stýrir vinnunni með samtali og leiðbeiningum á venjulegu máli. Áherslan er á að útskýra hvað þú vilt fá fram, gefa viðeigandi samhengi og meta niðurstöðurnar. Þú færð leiðsögn við uppsetningu og verklegar æfingar.
Eru heimaverkefni í Námskeiði 2?
Já. Eftir hvora vinnulotu færðu heimaverkefni til að æfa það sem þú hefur lært. Milli tímanna prófarðu vinnubrögðin og tekur eftir því hvað gengur vel, hvar þú festist og hvaða spurningar vakna. Að loknum seinni tímanum færðu einnig hefti með hugmyndum að næstu skrefum svo þú getir haldið áfram á eigin spýtur.
Fæ ég kennslugögn og skírteini?
Já. Þú færð kennslugögn og skírteini eftir hvort námskeið sem þú lýkur. Í Námskeiði 2 færðu einnig grunnuppsetningu fyrir eigin aðstoðarmenn, heimaverkefni eftir hvora vinnulotu og hefti með hugmyndum að næstu skrefum.
Er hægt að taka námskeiðin í fjarnámi?
Námskeiðin fara fram á staðnum nema annað sé sérstaklega tekið fram. Ef þú ert hluti af hópi sem hefur áhuga á fjarnámskeiði, til dæmis frá vinnustað eða félagi, hafðu endilega samband. Við getum skoðað að setja upp sérstakt fjarnámskeið fyrir hópinn. Hafa samband
Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?
Reglur og fjárhæðir eru mismunandi eftir menntasjóðum stéttarfélaga. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns. Hafa samband
SKRÁNING
Taktu stökk fram á við í starfi
Hafðu samband til að fá upplýsingar um komandi námskeið eða sérsniðna leið fyrir hóp.