Námskeið 1
Lærðu að nýta gervigreind í verkefnum
Á þessu 3,5 klukkustunda verklega námskeiði lærirðu að eiga markviss samskipti við gervigreind og nýta hana í eigin verkefnum. Þú æfir að útskýra hvað þú vilt fá fram, gefa viðeigandi samhengi og bæta niðurstöður með samtali og endurgjöf.
Þú lærir að meta svörin, sjá hvað vantar og beita eigin þekkingu og dómgreind til að móta gagnlega niðurstöðu. Þú prófar einnig hvernig verkefni (Projects) og viðbætur (plugins) geta hjálpað þér að halda utan um samhengi og vinna með gögn og verkfæri.
Á NÁMSKEIÐINU
Dýpkaðu skilning þinn á gervigreind
Á námskeiðinu færðu skýrar útskýringar á því hvernig gervigreind virkar og hvernig þú getur nýtt hana í verkefnum. Þú prófar að gefa henni viðeigandi samhengi úr vinnunni, þekkingu þinni og reynslu svo hún geti aðstoðað þig betur. Með skýrari spurningum og samtali fram og til baka lærir þú að móta gagnlegri niðurstöður.
AFRAKSTUR NÁMSKEIÐSINS
Þetta tekur þú með þér
- Skilur betur hvað gervigreind getur gert og hvar takmörk hennar liggja
- Lærir að þróa niðurstöður í samtali við gervigreind
- Áttar þig á því að því betra samhengi sem gervigreindin hefur um stöðu verkefnanna þinna, því betur getur hún aðstoðað þig
- Tileinkar þér vinnulag til að yfirfara og sannreyna niðurstöður gervigreindar
- Beitir eigin dómgreind þegar svör gervigreindar eru ófullkomin eða óviss
- Ferð heim með traustan grunn til að halda áfram að læra, prófa og þróa færni þína í notkun gervigreindar
Kennslan fylgir samfelldri sögu og kunnuglegum verkefnum svo þátttakendur sjái hvernig vinnan þróast frá fyrstu spurningu yfir í drög, yfirferð og niðurstöðu. Sagan styður við kennsluna en aðaláherslan er alltaf á það sem þú getur nýtt í eigin vinnu.
- Samtalið
- Byggir upp samhengi
- Gervigreindin
- Styður við vinnuna
- Þú
- Yfirfer og tekur ákvarðanir
FYRIR HVERJA
Fyrir fólk sem vill komast lengra en einföld spjöll við gervigreind og ná betri tökum á henni
Námskeiðið hentar þeim sem hafa prófað gervigreind en vilja skilja hana betur, læra að eiga gagnlegra samtal við hana og prófa hvernig hún getur nýst í eigin verkefnum og verkfærum. Engin tæknileg sérþekking er nauðsynleg.
Námskeiðið hentar þeim sem:
- Hafa prófað að spjalla við gervigreind en vilja ná betri tökum á henni
- Vilja skilja gervigreind betur og nýta hana í eigin verkefnum
- Vilja prófa að tengja einkatölvupóst eða vinnupóst, ef það er heimilt, við gervigreindina og prófa valdar viðbætur undir leiðsögn
LEIÐBEINANDI
Stefán Gunnarsson
Tölvunarfræðingur og stofnandi BrainBox
Stefán Gunnarsson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum. Hann hefur víðtæka reynslu af því að nýta og innleiða gervigreind markvisst í vinnuumhverfi og kennir út frá raunverulegum verkefnum og eigin reynslu.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Hversu mikla reynslu þarf ég af gervigreind?
Það er kostur að hafa prófað að spjalla við gervigreind, en þú þarft ekki tæknilega sérþekkingu. Á Námskeiði 1 lærirðu að gefa skýrar leiðbeiningar, veita samhengi og þróa niðurstöður með samtali. Algjör byrjandi getur fylgt kennslunni, en námskeiðið nýtist líka þeim sem hafa prófað gervigreind og vilja vinna markvissar með hana.
Þarf ég eigin fartölvu og áskrift?
Þú getur fylgt kennslunni án fartölvu eða áskriftar. Við mælum þó með fartölvu og aðgangi að gervigreindarþjónustu svo þú getir tekið þátt í verklegum æfingum. Sumar æfingar, svo sem notkun viðbóta í Claude, krefjast aðgangs að þeim eiginleikum. Ef þú hefur ekki þann aðgang geturðu fylgst með sýnikennslunni.
Þarf ég að nota ákveðið gervigreindarforrit?
Nei. Áherslan er á samskipti, samhengi og vinnubrögð sem nýtast með ChatGPT, Claude og öðrum gervigreindarþjónustum. Sumar æfingar nota tiltekin verkfæri, svo sem viðbætur í Claude, en þú getur fylgt kennslunni þótt þú hafir ekki aðgang að þeim. Ekki þarf að setja upp Codex fyrir Námskeið 1.
Get ég notað vinnutölvu?
Já, ef reglur og aðgangsstýringar vinnustaðarins leyfa verkfærin sem þú ætlar að nota. Fyrir Námskeið 2 þarf tölvan að geta keyrt Codex eða Claude Cowork og leyft vinnu með viðeigandi skrár og möppur. Tenging við vinnupóst eða önnur vinnukerfi þarf einnig að vera heimil. Kannaðu þetta fyrirfram hjá vinnustaðnum; eigin fartölva getur verið einfaldari kostur ef vinnutölvan er læst.
Get ég nýtt það sem ég læri með öðrum gervigreindarverkfærum?
Já. Aðferðirnar við að útskýra verkefni, gefa samhengi, móta leiðbeiningar og yfirfara niðurstöður nýtast víða. Möguleikar á að vinna með skrár, tengjast forritum og samræma vinnu agenta eru þó mismunandi eftir verkfærum og aðgangi. Þú gætir því þurft að laga einstök skref að verkfærum vinnustaðarins. Fyrir verklegar æfingar í Námskeiði 2 notarðu Codex eða Claude Cowork.
Þarf ég að kunna að forrita?
Nei. Þú stýrir vinnunni með samtali og leiðbeiningum á venjulegu máli. Áherslan er á að útskýra hvað þú vilt fá fram, gefa viðeigandi samhengi og meta niðurstöðurnar. Þú færð leiðsögn við uppsetningu og verklegar æfingar.
Fæ ég kennslugögn og skírteini?
Já. Þú færð kennslugögn og námskeiðsskírteini að loknu Námskeiði 1.
Þarf ég að fara áfram í Námskeið 2?
Nei. Námskeið 1 stendur sjálfstætt og veitir þér færni til að vinna markvissar með gervigreind. Námskeið 2 er framhald fyrir þau sem vilja læra að setja upp eigin AI-agenta, fela þeim verkefni og stýra vinnu þeirra.
Er hægt að taka námskeiðin í fjarnámi?
Námskeiðin fara fram á staðnum nema annað sé sérstaklega tekið fram. Ef þú ert hluti af hópi sem hefur áhuga á fjarnámskeiði, til dæmis frá vinnustað eða félagi, hafðu endilega samband. Við getum skoðað að setja upp sérstakt fjarnámskeið fyrir hópinn. Hafa samband
Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?
Reglur og fjárhæðir eru mismunandi eftir menntasjóðum stéttarfélaga. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns. Hafa samband
Skráning
Hefurðu áhuga á námskeiðinu?
Hafðu samband til að fá upplýsingar um komandi námskeið eða sérsniðna leið fyrir hóp.